Auglýsingar

Norđurmjólk
Gámaţjónustan
Stefna ehf
Höldur
Coka Cola

Velkomin í Skautahöllina á Akureyri

Símanúmer Skautahallarinnar er 461-2440, gsm: 864-7464 og email: skautahollin@sasport.is

 

 

 

 

 

Skautahöllin er lokuð fram í september.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Opnunartími í skautahöllinni

september til maí

 

  MIÐVIKUDAGAR  13 - 15

FIMMTUDAGAR 13 - 15

FÖSTUDAGAR 13 - 16

FÖSTUDAGSKVÖLD - SKAUTADISKÓ 19:30 - 21:30

LAUGARDAGA 13 - 17

SUNNUDAGA 13 - 17

Það er tilvalið að taka skautasvellið á leigu fyrir hópa eða félagasamtök og má nefna að tilvalið er fyrir starfsfólk fyrirtækja að bregða sér á skauta, spila íshokkí eða fara í krullu en það er íþrótt sem kemur verulega á óvart. Einnig er mjög vinsælt er að halda uppá barnaafmæli hérna í Skautahöllinni. Nánari upplýsingar um þetta og tímapantanir eru í síma 864-7464.

Skautafélag Akureyrar var stofnað 1. janúar 1937. Félagið hefur það að markmiði að efla skautaíþróttina og rekur nú hina nýju og glæsilegu Skautahöll á Akureyri. Hægt er að fá leigða skauta á svæðinu og einnig er þar starfrækt sjoppa.

Nýjustu fréttir

  • Sumar hokkískóli 2010 á Akureyri, Skráning er hafin !

    Nú hefur Sarah lokið skipulagningu Sumar hokkískólans sem haldinn verður í ágúst og hægt er að skrá sig hér á vefnum með því að smella á tengilinn "skráning í sumar hokkískólann 2010" hér til vinstri. Skólinn er fyrir alla aldurshópa og "algjört möst" til að starta vetrinum jafnfætis sunnlendingunum. Smelltu á "Lesa Meira" til að skoða nánar. Lesa meira

  • Byrjendanámskeiđ í ágúst

    Byrjendanámskeið á skautum fyrir börn fædd 2006 og fyrr verður haldið dagana 9.-13. ágúst kl:17:00-18:00 í Skautahöllinni á Akureyri. Á sama tíma verður haldið byrjenda námskeið fyrir unglinga og fullorðna. Verð kr. 5.000. Skráning og nánari upplýsingar; hildajana@gmail.com

     


  • Uppgangur í kvennahokkí

    50 SA konur 2010
    Mikill uppgangur hefur verið í kvennahokkí síðustu misseri hér á Akureyri og nú er svo komið að íshokkíkonur nálgast það að vera þriðjungur af iðkendum hokkídeildar SA.  SA byrjaði með kvennalið árið 2000 og síðan þá hefur verið stöðugur vöxtur, ekki síst þó síðustu ár eftir að Sarah Smiley var ráðinn til félagsins sem þjálfari.  Lesa meira

  • Úrslit Gođamótsins

    Helga Jóhannsdóttir Akureyrarmeistari 2010. 2.sćti Birta Jóhannsdóttir 3.sćti Kolbrún Egedía Sćvarsdóttir
    Góðamótið fór fram um helgina og þar var Helga Jóhannsdóttir, krýnd Akureyrarmeistari árið 2010. Önnur úrslit má finna hér. Lesa meira

  • Leikur í dag kl. 11:00

    Ljósmynd Sigurgeir Haraldsson
    Í dag kl. 11:00 mætast í Skautahöllinni á Akureyri, íslenska kvennalandsliðið og breska félagsliðið Slough Phantoms.  Leikurinn er liður í íshokkímótinu NIAC sem fram fer í höllinni um þessar mundir.

  • Vel heppnuđu kvennamóti lokiđ

    Stór kvennahópur ađ loknu móti. Ljósmynd Jódís Eva
    Kvennamótinu lauk á laugardagskvöldið á leik Hákarlanna og Snákanna en það var sjötti og síðasti leikur mótsins.  Mótið heppnaðist í alla staði mjög vel og segja má að mjög vel hafi tekist með að raða niður í lið, því öll liðin þrjú voru jöfn að styrkleika.  Leikmönnum úr öllum liðum og á öllum aldri var raðað saman í þrjár línur í hverju liði og séð var til þess að jafnar línur mættust með reglubundnum skiptingum. Lesa meira

  • Kvennamóti í Skautahöllinni á Akureyri

    Bergţóra međ pökkinn og Vigdís sćkir ađ. Ljósmynd: Jódís Eva
    Nú fer fram í Skauthöllinni á Akureyri kvennamót í íshokkí þar sem um 50 konur frá SA, SR og Birninum á öllum aldri keppa í þremur liðum.  Liðin þrjú sem sérstaklega voru sett saman fyrir þetta mót heita Svörtu snákarnir, Rauðu Tígranir og Hvítu hákarlarnir.  Hvert lið er skipað þremur línum, hver í sínum styrkleikaflokki, og þannig keppa saman línur af sama styrkleikaflokki allt mótið.  Með þessu móti næst að halda keppninni jafnri þrátt fyrir ólík getustig leikmanna. Lesa meira

  • Akureyri vann Bćjarkeppni karla

    Leikmenn beggja liđa ađ leik loknum.
    Í gær áttust við Akureyri og Reykjavík í fyrstu Bæjarkeppninni síðan 1991 í Skautahöllinni á Akureyri.  Mjög létt yfirbragð var yfir þessari viðureign og varð úr hin mesta skemmtun.  Lið Akureyrar var með öðru sniði en hið nýlega krýnda Íslandsmeistaralið.  Í markinu var hinn kanadíski DJ Mikki Svangi, en Sæmundur Leifsson spilaði í stöð Center.  Sveinn Björnsson spilaði með liði Akureyrar líkt og hann gerði einnig árið 1991, en hann skoraði ekki, ekki frekar en hann gerði fyrir 20 árum. Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning