Símanúmer Skautahallarinnar er 461-2440, gsm: 864-7464 og email: skautahollin@sasport.is .
Skautahöllin opnar fyrir
almenning miðvikudaginn
1. september.
Opnunartími í skautahöllinni
september til maí
MIÐVIKUDAGAR 13 - 15
FIMMTUDAGAR 13 - 15
FÖSTUDAGAR 13 - 16
FÖSTUDAGSKVÖLD - SKAUTADISKÓ 19:30 - 21:30
LAUGARDAGA 13 - 17
SUNNUDAGA 13 - 17
Það er tilvalið að taka skautasvellið á leigu fyrir hópa eða félagasamtök og má nefna að tilvalið er fyrir starfsfólk fyrirtækja að bregða sér á skauta, spila íshokkí eða fara í krullu en það er íþrótt sem kemur verulega á óvart. Einnig er mjög vinsælt er að halda uppá barnaafmæli hérna í Skautahöllinni. Nánari upplýsingar um þetta og tímapantanir eru í síma 864-7464.
Skautafélag Akureyrar var stofnað 1. janúar 1937. Félagið hefur það að markmiði að efla skautaíþróttina og hefur rekið Skautahöllina á Akureyri síðan um áramótin 1999-2000. Í Skautahöllinni er hægt að fá leigða skauta á sanngjörnu verði og fá lánaða hjálma án endurgjalds auk þess boðið er upp á skerpingu gegn vægu gjaldi fyrir þá sem þurfa.











