Flýtilyklar
Deildarval
Nýjustu fréttir
- Almennt - þriðjudagur 18.maí.10 14:03 - Reynir Sigurðsson - Lestrar 254Nú hefur Sarah lokið skipulagningu Sumar hokkískólans sem haldinn verður í ágúst og hægt er að skrá sig hér á vefnum með því að smella á tengilinn "skráning í sumar hokkískólann 2010" hér til vinstri. Skólinn er fyrir alla aldurshópa og "algjört möst" til að starta vetrinum jafnfætis sunnlendingunum. Smelltu á "Lesa Meira" til að skoða nánar. Lesa meira
-
Aðalfundur Skautafélagsins framundan
Almennt - föstudagur 21.maí.10 10:51 - Sigurður Sigurðsson - Lestrar 49Fimmtudaginn 27. maí 2010 fer fram aðalfundur Skautafélags Akureyrar. Fundurinn verður haldinn í fundarherbergi félagsins í Skautahöllinni og hefst hann kl. 20:00. Dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf og eru félagsmenn nær og fjær hvattir til að mæta og kynna sér starfsemi félagsins.
-
Uppgangur í kvennahokkí
Almennt - miðvikudagur 12.maí.10 16:00 - Sigurður Sigurðsson - Lestrar 139Mikill uppgangur hefur verið í kvennahokkí síðustu misseri hér á Akureyri og nú er svo komið að íshokkíkonur nálgast það að vera þriðjungur af iðkendum hokkídeildar SA. SA byrjaði með kvennalið árið 2000 og síðan þá hefur verið stöðugur vöxtur, ekki síst þó síðustu ár eftir að Sarah Smiley var ráðinn til félagsins sem þjálfari. Lesa meira
-
Sölukynning á kylfum og skautum í Skautahöllinni sunnudaginn 9. mai.
Almennt - föstudagur 7.maí.10 06:50 - Reynir Sigurðsson - Lestrar 31Heiðar Ingi í Everest ætlar að vera með sölukynningu á skautum og kylfum kl.17,00. Þarna er um að ræða góðar vörur fyrir afar hagstæð verð og algjörlega þess virði að kíkja við. Hægt verður að panta hjá honum og fá afhent í haust. Staðfestingargjald 30% gegn 30% afslætti á skautum og 20% aflætti á kylfum.
-
Aðalfundur Íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar
Almennt - þriðjudagur 4.maí.10 14:52 - Reynir Sigurðsson - Lestrar 28Aðalfundur Hokkídeildarinnar verður haldinn miðvikudaginn 12. mai 2010 kl. 20,00 í fundarherberginu inni í Skautahöll.
-
KRAKKAFJÖR AÐ HÖMRUM - Uppskeruhátíð 5., 6. og 7.flokks 2. mai
Almennt - fimmtudagur 29.apr.10 11:25 - Reynir Sigurðsson - Lestrar 20Jæja þá er loksins komið að uppskeruhátíðinni okkar. Við ætlum að hittast á Hömrum – svæði skátafélgasins hjá Kjarnaskógi - núna sunnudaginn 2 mai frá kl 11-13. Þar ætlum við að skemmta okkur og eru foreldrar kvattir til að koma með börnum sínum og systkini eru velkominn.
Dagskráin er mjög frjálsleg og ekki endilega í þessari tímaröðvið
munum afhenda myndir af liðunum,
við förum í leiki
við nýtum hlöðuna og fótboltaspilið sem er á staðnum
við munum vera með hoppikastala
við munum grilla pylsur og drekka gos með - nú eða annað hollara
við munum borða ís á eftir
við munum skemmta okkur vel
Við munum að sjálfsögðu þiggja aðstoð frá foreldrum við eitthvað af þessu, endilega gefa sig fram á staðnum.
Með skemmti kveðjum, Stjórn Foreldrafélagsins.
-
4.flokkur lagður af stað að sunnan
Almennt - sunnudagur 25.apr.10 14:22 - Reynir Sigurðsson - Lestrar 14Áætlaður komutími að Skautahöllinni er ca. kl. 18,40
(Hópurinn fór frá Staðarskála kl. 16,10)
(Krakkarnir lögðu af stað frá Reykjavík um kl. 13,20. Nánari fréttir af komutíma þegar líður á daginn.)
Leit
Nýtt á vefnum
Heimsóknir
Samtals: 433404






