Ljósmynd: Sigurgeir Haraldsson
Í kvöld mætast SA og Björninn í þriðja leik úrslitakeppninnar um Íslandsmeistaratitilinn. Staðan í einvíginu er 2 - 0 fyrir stelpunum okkar og í kvöld verður allt lagt í sölurnar því með sigri geta þær tryggt sér titilinn. SA unnu nokkuð öruggan sigur í fyrsta leik og fóru vel af stað í þeim næsta, en Björninn kom til baka og hleypti spennu í leikinn. Stelpurnar þurfa að eiga góðan leik í kvöld til þess að klára þetta og þær þurfa á stuðningi áhorfenda.
Leikurinn verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni N4 og mun þetta vera í fyrsta skiptið sem sýnt er beint frá íshokkí kvenna hér á landi. Virkilega skemmtileg tímamót og á sjónvarpsstöðin mikinn heiður skilinn fyrir þetta framtak.
Látum öll sjá okkur í kvöld og látum einnig heyra hátt í okkur - klæðumst rauðu og hrópum áfram SA!