Karfan er tóm.
Það verður mikið um að vera í Skautahöllinni á Akureyri í dag en þá munu fara fram tveir íshokkíleikir. SA tekur á móti Birninum í 2. flokki karla og mfl kvenna. Báðir leikirnir eiga það sammerkt að hafa lítið gildi, þ.e.a.s. annað en skemmtanagildi. Fyrri leikurinn verður síðasta viðureign liðanna í undankeppninni hjá konunum og þar eru úrslitin þegar ráðin, þ.e. Björninn hefur þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn en þetta er síðasta viðureign liðanna fyrir úrslitakeppni sem hefst um næstu helgi. Úrlistin í þessum leik breyta því ekki á nokkurn hátt stöðunni en úrslitinum munu að öllum líkindum segja eitthvað til um hvað koma skal í úrslitum. Sú breyting hefur þó verði gerð á liði SA að Josh Gribben mun taka bekkinn og Sarah Smiley mun einbeita sér að spilamennskunni.
Strax á eftir konunum munu strákarnir í 2. flokki mætast í síðustu viðureign vetrarins í þeim flokki en þarna eru úrslitin einnig ráðin því Björninn tryggði sér titilinn í síðata leik gegn SR fyrri sunnan. En sem sannir keppnismenn þá ætla Bjarnarmenn þeir að mæta í dag og spila þenna síðasta leik og er það vel. Þessi leikir eru ávallt mikil skemmtun og gárungarnir hafa haft það að orði að þessir leikir séu í raun skemmtilegri heldur en meistaraflokksleikirnir. Þetta er skemmtilegur dagur framundan með miklu hokkí, skellið kakó á brúsa og grípið með ykkur teppi - það er hokkí í höllinni frá kl. 17:30 til 22:30, gerist ekki betra.