Karfan er tóm.
Framundan er Vorsýning 27. apríl klukkan 17. Vegna þessa og hokkímóts verða breytingar á æfingatímum. Sjá nánar hér...
Kæru foreldrar iðkenda í 3.-6. hóp!Við höfum nú hafið æfingar á vorsýningu deildarinnar sem að þessu sinni mun bera heitið Vorgleði. Sýningin verður haldin 27. apríl kl. 17!
Einhverjar breytingar munu verða á æfingatímum fram að sýningu bæði vegna hokkímóts og aukaæfinga.
Það verða örlitlar breytingar á æfingatíma á föstudag og laugardag vegna hokkímóts.
Á föstudag verða engar æfingar hjá 4.-6. hóp en 3. eldri skal mæta á sínum tíma milli 15 og 15:45.
Á laugardagsmorgun skulu 3. yngri og 3. eldri mæta saman milli 12 og 13.
Í stað æfinga á föstudag hjá 4.-6. hóp verða æfingar á laugardagskvöld. 4. hópur skal mæta milli 17 og 18, 5. hópur milli 18 og 19 og 6. hópur milli 19 og 20.
Munið að fylgjast vel með heimsíðu deildarinnar sasport.is/skautar!
Kær kveðja,
stjórn og þjálfarar