Karfan er tóm.
Nú fer að draga til tíðinda í Akureyrarmótinu 2015 í Krullu. Í gær voru leiknir 2 leikir þar sem Víkingar og Rokk stóðu uppi sem sigurvegarar. Garpar skelltu A, 11-3 og Víkingar lögðu Garpa 9-4. Þegar öll lið eiga einn leik eftir eru Garpar, Rokk og Víkingar öll jöfn að stigum en A eiga ekki möguleika á titlinum.
Fyrir síðustu leiki standa Víkingar best að vígi en þeir geta með sigri á Rokk tryggt sér Akureyrarmeistaratitilinn, sama hvernig leikur A og Garpa fer. Til að Garpar hreppi titilinn þurfa þeir að vinna A og treysta á að Rokk vinni Víkinga. Að sama skapi þarf Rokk þarf að sigra í sínum leik, og treysta á að A leggi Garpa, til að verða Akureyrarmeistarar. Sama hvernig fer koma vítaskot ekki til með að skipta máli.
Síðustu leikir eru þá A og Garpar á 4. braut og Rokk og Víkingar á 5. braut. A og Rokk hefja upphitun og leika með dökka steina. Stöðu, úrslit og skor má nálgast hér.