Karfan er tóm.
Fimm lið eru skráð til leiks og verður dregið um töfluröð fyrir fyrstu umferðina.
Mótið verður með hefðbundnu fyrirkomulagi eftir sömu mótareglum og verið hafa í gildi (sjá hér). Allir leikir eru 8 umferðir. Liðin fimm eru Freyjur, Garpar, Ice Hunt, Mammútar og Víkingar. Dregið verður um töfluröð fyrir fyrstu umferðina í kvöld, en vegna forfalla hafa Freyjur óskað eftir því að sitja yfir í fyrstu umferðinni. Liðin fimm spila einfalda umferð, allir við alla og verður leikið á mánudagskvöldum.
Leikjadagskráin (excel)