Karfan er tóm.
Fyrsta umferð í undankeppni Íslandsmótsins fór fram sl. mánudag. Segja má að mikil spenna og ekki svo mikil spenna hafi verið í leikjum kvöldsins. Dollý sigraði Víkinga 8-7 en leika þurfti auka enda til að ná fram úrslitum. Í hinum leik kvöldsins völtuðu Ice Hunt yfir Freyjur 10 -1. Garpar sátu hjá í fyrstu umferð. Næsta umferð verður leikin á mánudag 9. mars og þá eigast við annarsvegar Dollý og Freyjur og hinsvegar Garpar og Víkingar. Ice Hunt situr hjá. Vakin er sérstök athygli á því að 5. umferð verður leikin miðvikudaginn 18. mars. Skor og frekari upplýsingar eru hér.