Karfan er tóm.
Í gær var leikin 3. umferð í undankeppni Íslandsmótsins. Freyjur sigruðu Garpa 9-5 og Ice Hunt lagði Dollý 9-5. Öll lið eiga enn möguleika á að komast í úrslitakeppnina og jafnvel gæti farið svo að öll liðin endi með sama stigafjölda. Það gæti því komið til greina að úrslit ráðist á vítaskotum. Þar standa Víkingar og Garpar best að vígi en Ice Hunt og Dollý eru með lakastan árangur. Úrslit og stöðu má sjá hér.
Vakin er athygli á því að 4. umferð fer fram í kvöld en ekki á morgun eins og fyrirhugað var. Garpar leika við Ice Hunt og Víkingar við Freyjur. Fáum svellið kl. 19:00 og reiknað með að leikir hefjist upp úr 19:30.