Karfan er tóm.
Þetta er í ellefta sinn sem leikið er um Íslandsmeistaratitil í krullu. Búið er að draga um töfluröð í mótinu og fer fyrsta
umferð fram mánudagskvöldið 23. janúar. Eingöngu verður leikið á mánudögum, nema að hugsanlegt er að í neyð þurfi
að spila á miðvikudagskvöldi ef fresta þarf leik.
Athygli keppenda er vakin á nokkrum mikilvægum breytingum sem gerðar hafa verið frá fyrri mótum.
Reglur mótsins eru í pdf-skjali hér. Krullureglur Alþjóða krullusambandsins má finna á vef WCF hér. Tilbúin eru drög að íslenskri þýðingu reglnanna sem vonandi verða birtar hér innan tíðar. Krullufólk er hvatt til að kynna sér reglurnar.
Leikjadagskrána má sjá í excel-skjali hér, en þar eru þó ókláraðar upplýsingar um liðsskipan, auk þess sem fyrirvari er við dagsetningar á síðari umferðum mótsins þar sem hugsanlega verður skotið inn á milli aukamánudegi undir frestaða leiki ef þörf verður á. Tímasetning á úrslitakeppni hefur ekki verið ákveðin.
Miðað er við að fjögur lið sjái um undirbúning á ís hverju sinni, þ.e. þau lið sem talin eru upp á eftir í leikjadagskránni.
Fyrsta umferð, mánudaginn 23. janúar:
Braut 2: Fífurnar - Svartagengið
Braut 3: Ísherjar - Víkingar
Braut 4: Skytturnar - Ís-lendingar
Braut 5: Mammútar - Rennusteinarnir
Ísumsjón: Svartagengið, Víkingar, Ís-lendingar, Rennusteinarnir.