Lokaleikur í Akureyrarmótinu í krullu

Mynd: Sigurgeir Haraldsson
Mynd: Sigurgeir Haraldsson


Í kvöld fer fram lokaleikur Akureyrarmótsins í krullu. Verðlaunaafhending verður mánudaginn 11. nóvember, við upphaf Gimli Cup.

Leikur kvöldsins er á milli Garpa og Freyja, en leiknum var frestað í október. Öllum öðrum leikjum er lokið og er leikurinn í kvöld hreinn úrslitaleikur um bronsverðlaunin. Mammútar hafa tryggt sér Akureyrarmeistaratitilinn og Ice Hunt fær silfrið. Verðlaunaafhending verður við upphaf Gimli Cup mánudagskvöldið 11. nóvember, ásamt því að þá verður dregið um töfluröð í Gimli Cup.