Karfan er tóm.
Í kvöld fór fram leikur í Íslandsmóti kvenna hér í Skautahöllinni og að þessu sinni voru það Akureyrarliðin Valkyrjur og Ynjur. Um var að ræða hörkuleik sem var jafn alveg fram á síðustu mínútu. Liðin skiptust á að skora en það voru Ynjur sem opnuðu reikninginn á 11. mínútu með marki frá Þorbjörgu Geirsdóttur (Geirssonar). Anna Sonja Ágústsdóttir (Ásgrímssonar) jafnaði leikinn nokkru mínútum síðar og þannig stóðu leikar eftir fyrstu lotu.
Í 2. lotu var áfram allt í járnum og hvort lið náði að setja tvö mörk og breyta stöðunni í 3 - 3, en það voru þó Ynjurnar sem voru skrefi framar og Valkyrjur eltu. Mörk Valkyrja skoruðu Birna Baldursdóttir og Guðrún Blöndal en hjá Ynjum voru það Telma Guðmundsdóttir og Kristín Jónsdóttir.
Í 3. lotu hélt jafnræðið áfram fram í miðbik lotunnar en þá skoraði Birna Baldursdóttir sigurmarkið óstudd þegar Valkyrjur voru einum leikmanni færri, og Sarah Smiley fylgdi í kjölfærið og bætti við 5. markinu einnig „short handed“. Síðasta mark leiksins átti svo Birna sem fullkomnaði þrennuna sína þegar hálf mínúta var eftir af leiknum.
Mörk og stoðsendingar
Valkyrjur: Birna Baldursdóttir 3/0, Guðrún Blöndal 1/1, Hrönn Kristjánsdóttir 0/2, Sarah Smiley 1/0, Anna Sonja Ágústsdóttir 1/0, Linda Sveinsdóttir 0/1.
Ynjur: Kristín Jónsdóttir 1/1, Þorbjörg Geirsdóttir 1/0, Telma Guðmundsdóttir 1/0, Díana Björgvinsdóttir 0/1.
Brottvísanir: Valkyrjur 8 mín. og Ynjur 4 mín.
Aðaldómari leiksins var Orri Sigmarsson og línuverðir voru Garðar og Andri. Orri er að stíga sín fyrstu skref í dómgæslunni og stóð sig virkilega vel.