Björninn 1 vann Bikarinn

Jæja, þá er fyrsta Bikarmótinu í 4.fl. lokið og SA þakkar Birninum fyrir komuna og góða skemmtun um helgina. Björninn mætti með tvö lið og hafði nokkra yfirburði á þessu móti og sjá mátti afar skemmtilega leiki þegar þeir tókust á innbyrðis. SA-liðið átti við ofurefli að etja en stóðu sig eins og hetjur og létu ekki bugast við mótlætið heldur börðust eins og sannir víkingar alveg fram á síðasta pökk. Mótinu lauk svo um hádegisbil með pizzaveislu og vonum við að allir hafi átt gleðilega helgi og góða heimferð. Einnig var leikur í 2.fl.kl: 20,00 á laugardagskvöldið á milli SA og SR. Þeim leik lauk með sigri heimamanna 8 - 4. (2-2)(1-0)(5-2)