BAUTAMÓTIÐ 24. og 25. september

Nú um helgina fer fram hið árlega BAUTAMÓT í íshokkí, en það er 4.flokkur barna sem etur þar kappi. Frá Íshokkífélaginu Birninum kemur bæði A og B lið en frá Skautafélagi Reykjavíkur kemur einungis A lið og munu þau keppa við bæði A og B lið frá Skautafélagi Akureyrar. Mótið stendur frá 8 að morgni laugardagsins til ca. 20,30 umkvöldið með þó hléi á milli 13 og 15 en þá verður opið fyrir almenning á svellinu og svo er því framhaldið á sunnudagsmorgninum frá kl. 8 til 12 og líkur með P-veislu í boði BAUTANS. Hvetjum við nú alla sanna hokkíunnendur til að koma og fylgjast með þessum frísku krökkum því þarna er vissulega mikið fjör á ferðinni.       ÁFRAM SA ..........