Flöskusöfnun 29 april kl 17:00

Foreldrafélagið stendur fyrir flöskusöfnun 29 april kl 17:15.  Allir iðkenndur 16 ára og yngir geta tekið þátt, fínt að safna upp í sumarnámskeiðið!

Flöskusöfnun Hokkídeildar 

3-7 flokkur og byrjendur   

Miðvikudaginn 29 april ætlum við að ganga í hús og safna flöskum með krökkunum.  Mæting er kl 17:15 inn í skautahöll þar sem þið skráið ykkur og fáið götur til að fara í. Mjög mikilvægt að mæta inn í höll til að skrá sig ! Söfnuninni lýkur svo kl. 19:30 og þið skilið því sem safnast hefur upp í endurvinnslu.  Hægt er að skila upp í endurvinnslu frá kl. 19:00.  Athugið að skrá ykkur þegar þið komið með pokana þangað, þannig að við vitum þegar allir hafa skilað sér. Við verðum að telja upp í endurvinnslu eins lengi og þarf en miðum við að allir verði búnir að skila af sér  fyrir kl 20:00 

Allir sem taka þátt eiga að vera í hokkítreyjunum sínum, þannig að það fari ekki milli mála að þið eruð að safna fyrir Hokkídeild S.A.  Þeir sem eiga ekki hokkítreyjur geta fengið þær lánaðar inn í höll við skráningu.