Frestun á hokkímóti og hokkíleikjum


Mikil röskun verður á starfsemi Skautahallarinnar á Akureyri í dag vegna ófærðar á Akureyri.

Vegna ófærðar og veðurs verður ekkert af innanfélagsmótinu í hokkí sem átti að vera í dag. Leikjum í meistaraflokki karla og kvenna sem áttu að vera í Skautahöllinni á Akureyri í dag hefur einnig verið frestað um óákveðinn tíma.

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um starfsemi í Skautahöllinni í dag, en tilkynnt verður um það hér á heimasíðunni fljótlega.