Íslandsmót í 4. flokki fer fram um helgina

Þessa helgi fer fram hér í Skautahöllinni 2. hluti af þremur í íslandsmóti 4. flokks.

Skautafélag Akureyrar teflir fram 2 liðum, einu A liði og einu B liði eins og Björninn en SR sendir aðeins A lið. Mótið samanstendur af 10 leikjum, 3 fyrir hádegi á laugardag, 3 síðdegis á laugardag og 4 fyrir hádegi á sunnudeginum. Hver leikur er þrisvar sinnum 15 mín. með 15 mín. heflun milli 2. og 3. leikhluta.