Skráning í fyrstu ferð vetrarins hjá 5-6-7 flokk

Nú er komið að skráningu krakka í 5-6-7 flokk og byrjendur fyrir mót í skautahöllinni Laugardal 9-11 okt 2009.Rútan mun leggja af stað frá skautahöllinni um kl 13 á föstudeginum og það verður  gist  á Farfuglaheimilinu í  Laugadalnum.   

Það þurfa ALLIR að vera búnir að skrá sig fyrir kl 17 sunnudaginn 25 september.

Sæll öll sömul  Þannig að nú vantar mig að vita hverjir fara með í þessa keppnisferð - það er líka gott að fá tilkynningu ef einhverjir ætla ekki með. Það sem við þurfum að vita er eftirfarandi:
  • Nafn iðkanda sem ætlar að fara
  • Nafn foreldra sem ætlar að koma með./ sérþarfir / einn í herbergi eða sama hvort þú deilir herbergi með öðrum/ ertu til í að vera með fleiri börn inn á herbergi með þér.
    • Á að gera ráð fyrir foreldrum í kvöldmat/ morgunmat.
  • Fara foreldrar með í rútunni aðra eða báðar leiðir.
  • Reglan er sú að við ferðumst sem hópur og erum saman sem hópur alla ferðina.

 Búið er að setja verðmiða á ferðina 16.000 kr fyrir barn. Við vona náttúrulega að sem flestir iðkendur komist með í þessa ferð.    

Með kveðju 
fh foreldrafélags hokkídeildar SA 
Anna Kristveig Arnardóttir