Sunna Björgvinsdóttir íshokkíkona ársins

Sunna Björgvinsdóttir íshokkíkona ársins 2024
Sunna Björgvinsdóttir íshokkíkona ársins 2024

Sunna Björgvinsdóttir hefur verið valin íshokkíkona ársins 2024 af stjórn Íshokkísambands Íslands.

Eins og fram kemur á heimasíðu ÍHÍ þá hefur Sunna leikið síðustu ár í Svíþjóð en er alin upp hjá Skautafélagi Akureyrar. Sunna er á sínu þriðja tímabili með Södertalje þar sem hún hefur leikið með framúrskarandi árangri. Sunna gerði nýlega samning við Leksand í SDHL deildinni þar sem hún mun spila á lánssamning frá Södertalje og verður þá annar íslenski íshokkíleikmaðurinn sem kemst í að spila í þessari sterkustu íshokkídeild Evrópu.

Sunna var fyrst valin í landslið Íslands 2015 og hefur verið lykil leikmaður í liðinu síðan eða um níu ára skeið. Liðið hefur verið á góðri siglingu þessi ár og er í 28 sæti á heimslista Alþjóða íshokkísambandsins. Með liði sínu Sodertelje SK lék Sunna 32 leiki á árinu og átt þátt í 43 mörkum (19 mörk og 24 stoðsendingar).

Sunna er einstaklega jákvæð, góður liðsfélagi og er fyrirmynd margra yngri iðkenda. Sunna hefur sýnt það að hún er liði sínu og landsliði ávallt til sóma hvort sem það er í leik eða utan hans.