Karfan er tóm.
Laugardaginn 5. október kl. 16.30 mætast Víkingar og Húnar í mfl. karla á Íslandsmótinu í íshokkí. Að loknum þeim leik (ca. kl. 19.00) mætast SA og Björninn í mfl. kvenna á Íslandsmótinu.
Á íþróttafréttamiðlinum Norðursporti (nordursport.net) er fjallað um leiki dagsins, annars vegar með stuttu viðtali við fyrirliða Víkinga og hins vegar með pistli um breytingarnar sem gerðar hafa verið á Íslandsmótinu í kvennaflokki.