Víkingar og Jötnar áttust við í gær

Grrrr. Myndina tók Elvar Pálsson
Grrrr. Myndina tók Elvar Pálsson

Í gærkvöldið mættust hér í Höfuðstað hokkísins Víkingar og Jötnar í fyrsta skiptið í vetur.  Fyrir leikinn voru Víkingar í neðsta sæti og Jötnar töluvert ofar eftir sigur á Húnum í síðasta leik.  Helgi LeCunt fyrirliði Jötna lét hafa það eftir sér fyrir leikinn að hann hefði mestar áhyggjur af því hans menn myndi vanmeta Víkinga, enda liðið í botnsætinu.  Ómar Smári Skúlason spilaði með Jötnum að þessu sinni og var uppteknari en einfættur maður í rassasparkskeppni frá upphafsmínútu til loka leiks.  Andrarnir Mikaelsson og Sverrisson voru ferskastir Víkinga en Jötnarnir áttu erfitt með að halda aftur þeim í sókninni.  Einnig létu Eyfirðingarnir Grettisson og Sveinsson að sér kveða.

 

Hjá Jötnum voru LeCunt og Jónsteinsson í aðalhlutverkum en mesta athygli vakti hve þröngar treyjurnar voru á þeim og líklegt má telja að það hafi haft einhver áhrif á loftstreymið og hreyfigetuna.  Í vörninni fór Hermann Knútur mikinn en á meðfylgjandi mynd má sjá grimmdina skína úr augunum á honum þegar hann eltir miðju-Leifssoninn