Jan Kobezda ráðin aftur!

Jan kobezda hefur aftur verið ráðin sem þjálfari skautafélags akureyrar.  Ekki er þó vitað hvort kappinn ætlar sér að spila með okkur næsta vetur. Vegna meiðsla í mjöðm sem hann hlaut fyrir nokkrum árum og urðu til þess að hann þurfti að hætta spila sem atvinnumaður. S.A munu nú enn eitt árið missa leikmenn því Birkir ætlar sér að leggja land undir fót, og reyna fyrir sér í danmörku sem er bara gott og blessað. Ekki er vitað hvað Mike Kobezda og Tibor Tatar ætla sér en það kemur í ljós síðar. Jón Ingi kemur þó aftur og verður hann góð viðbót fyrir liðið og jafnvel fleiri "gömul" S.A. andlit gætu einnig bæst í hópinn fyrir næsta vetur. Þannig að vonandi verður næsti vetur hinn skemmtilegasti. ÁFRAM S.A.!!!