Leikur 2 í úrslitum í dag kl.18.00

Í dag klukkan sex verður spilaður annar leikurinn í úrslitum mfl. karla. Nú ætla SA drengir að leggja allt í að jafna árangur síðustu viðureignar og verður hér því örugglega um spennandi leik að ræða. ALLIR hvattir til að mæta ogt hvetja strákana. ÁFRAM SA ..................  Í hléum og strax eftir leik verða 4., 2. og kvennaflokki veittar viðurkenningar vegna Íslandmeistaratitla.

Kæri Akureyringur

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Að kvöldi 17. apríl hófst úrslitakeppni meistaraflokks karla í íshokkí. Liðin sem etja kappi eru SA – Skautafélag Akureyrar og SR – Skautafélag Reykjavíkur. Úrslit 1. leiksins sem spilaður var í Skautahöllinni í Laugardal í gærkvöldi urðu þau að SA vann með 5 mörkum gegn 2 heimamanna. Það lið sem fyrst vinnur þrjá leiki hreppir Íslandmeistaratiltilinn.

 

 

 

 

Þann 19. verður svo leikur númer 2 spilaður í Skautahöllinni á Akureyri og nú þurfa SA-drengirnir virkilega á þínum stuðningi að halda og því bjóðum við þér og þinni fjölskyldu og vinum að koma og horfa FRÍTT  á “svölustu og hröðustu íþrótt í heimi”

 

 

 

 

 

 

Leikurinn hefst stundvíslega kl. 18.00    fimmtudaginn 19.apríl í Skautahöllinni á Akureyri

 

 

 

 

Með þinni hvatningu á SA góðan möguleika á að landa Bikarnum.

 

 

Láttu það nú eftir þér, fjölskyldu og vinum að eiga skemmtilega og örugglega spennandi stund í Skautahöllinni og hjálpaðu strákunum til SIGURS.