SA - Narfi í kvöld kl. 21:00

Skautafélag Akureyrar tekur á móti Narfa frá Hrísey í kvöld kl. 21:00.  Leikurinn í kvöld er síðasti leikur SA fyrir úrslitakeppnina sem hefst í næstu viku.  Narfarnir mæta væntanlega borubrattir til leiks að vanda og verður leikurinn án efa hinn skemmtilegasti. SA liðið spilar án Jakobs og Tomasar þar sem þeir munu taka út leikbann vegna brota úr síðustu leikjum, en í staðinn hefur verið dreginn undan steini gamall Norðlendingur, Ingvar Þór Jónsson sem ætlar að sýna gamla takta á móti Narfanum og síðan SR í komandi úrslitakeppni.  Annar gamlingi, Rúnar Freyr Rúnarsson ætlaði að vera með okkur í kvöld þar sem hann er nú staddur hér í bæ, en því miður kom í ljós á síðustu stundu að hann passar ekki lengur í hokkígallann og því var ákveðið að hann skyldi bara veita okkur móralskan stuðning í staðinn.