Karfan er tóm.
SA Víkingar mæta Esju í þriðja leik úrslitakeppninar í íshokkí í kvöld kl 19.45 í Skautahöllinni á Akureyri. SA Víkingar leiða einvígið 2-0 og því gæti Íslandsmeistarabikarinn farið á loft í kvöld.
Leikirnir hafa verið hnífjafnir hingað til og úrslitin ekki ráðist fyrr en á lokaflauti. Stuðningur við okkar menn gæti gert útslagið í kvöld.
-Miðarverð er 1500 kr en frítt fyrir 15 ára og yngri.
-Fólki er bent á að mæta snemma til þess að ná góðum sætum og bílastæðum. Góða skemmtun!