Karfan er tóm.
SA Víkingar taka á móti Birninum í Hertz-deild karla á morgun, laugardag, kl 16.30 í Skautahöllinni á Akureyri. SA Víkingar geta með sigri í venjulegum leiktíma tryggt sér deildarmeistaratitlinn og þar með heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni. Aðgangseyrir er 1000 kr. frítt inn fyrir 16 ára og yngri.
SA Ásynjur leika svo við Reykjavík í Hertz-deild kvenna á laugardagskvöld kl. 19 og Ásynjur mæta svo Reykjavíkur liðinu á sunnudag kl 16.30. Frítt inn á leikina í Hertz-deild kvenna en úrslitin í deildinni eru nú þegar ráðin og Ynjur mæta Ásynjum í úrslitakeppninni sem hefst þriðjudaginn 6. mars kl. 19.45 í Skautahöllinni á Akureyri.