Karfan er tóm.
SAvíkingar hafa ekki riðið feitum hesti frá viðureignum sínum á heimavelli gegn SRingum í þónokkurn tíma, en á nýju ári tileinka menn sér nýja siði og nú ætla SAmenn að býta í skjaldarrendur að víkinga sið og verja heimavöllinn til frambúðar ( kanski þeir stökkvi hæð sína í fullum herklæðum en vonandi að þeir höggvi ekki mann og annann eða kljúfi í herðar niður (O; ) en víst er að SA mun hvergi gefa eftir og ætlar sér sigur í þessum leik og þar með að koma sér fyrir á toppi deildarinnar. Svo að nú er skyldumæting allra hokkíunnenda í Skautahöllina á Akureyri til að hvetja og styðja við sitt lið... Oft var þörf en nú er nauðsyn... ÁFRAM SA............
Að loknum meistaraflokks leiknum munu 3.flokkar félaganna eigast við, en þar er staðan sú að Bjarnarmenn leiða með 12 stig, SA er stutt undan með 9 stig en SR hefur ekki náð að landa stigi enn, svo það er bókað að þarna verður hart barist og ekkert gefið eftir. ÁFRAM SA ...........