4. flokkur bikarmeistari og Ynjur með góðann sigur um helgina

Það var margt um að vera hjá SA liðunum um helgina þar sem Bautamótið í 4. flokki fór fram á Akureyri en Ynjur og 2. flokkur ferðuðust til Reykjavíkur þar sem þau mættu Birninum í Egilshöll.

4. flokkur SA gerði gott bikarmót og sigruðu í þremur leikjum af fjórum en töpuðu þeim síðasta naumlega fyrir SR en urðu þó bikarmeistarar þar markahlutfall gerði gæfumuninn. Úrslit leikjanna í mótinu var sem hér segir:

Laugardagur:

SA-SR 3-0

SR-Björninn 5-0

SA-Björninn 18-1

Sunnudagur:

SA-Björninn 12-2

SA-SR 3-4

SR-Björninn 10-0

Stigahæstu leikmenn leikmenn SA (mörk/stoðsendingar):

Róbert Máni 7/4

Dagur Freyr 7/0

Unnar Hafberg 6/2

Heiðar Gauti 3/4

Andri Þór 4/0

Ynjur með stórsigur

Ynjur áttu ekki í basli með Björninn í Hertz deild kvenna í Egilshöllinni og unnu 8-1 sigur og endurheimtu þar með toppsætið í deildinni. Ynjur skoruðu 3 mörk í fyrstu lotunni og fóru með 3-0 forystu í aðra lotuna sem endaði 1-1. Ynjur skoruðu svo 4 mörk í þriðju lotunni en atkvæðamestar Ynja voru Sunna Björgvinsdóttir sem skoraði fjögur mörk í leiknum og Silvía Björgvinsdóttir sem var með tvö mörk og fjórar stoðsendingar. Ynjur hafa því 17 stig eftir 7 leiki spilaða en Ásynjur sem eiga leik til góða eru með 16 stig í öðru sæti.

Mörk og stoðsendingar Ynja:

Silvía Björgvinsdóttir 4/0

Silvía Björgvinsdóttir 2/4

Teresa Snorradóttir 1/0

Harpa Benediktsdóttir 1/0

Kolbrún Garðarsdóttir 0/1

Ragnhildur Kjartansdóttir 0/1

2. flokkur tapaði gegn Birninum

2. flokkur SA tapaði fyrir Birninum 8-1 í Egilshöllinni. Staðan var 2-0 Birninum í vil eftir 2. lotur en líkt of oft áður hrundi leikur SA í síðustu lotunni og því fór sem fór. Sigurður Þorsteinsson skoraði eina mark SA í leiknum en liðið hefur átt í miklu basli með að finna markmöskvana í vetur.