Aðalfundur foreldrafélags listhlaupadeildar SA

Aðalfundur foreldrafélags listhlaupadeildar SA verður 11. september n.k. kl.19.30. Fundurinn verður haldinn í fundarherberginu í skautahöllinni.

Efni fundarins: Hefðbundin aðalfundarstörf. Hvetjum alla til að mæta. Í beinu framhaldi fundarins er svo boðaður foreldrafundur stjórnar listhlaupadeildar SA. 

Við leitum að fulltrúum í stjórn foreldrafélagsins. Skemmtilegt starf í góðum hóp.

Hlökkum til að sjá ykkur

Stjórn foreldrafélags listhlaupadeildar SA