Aðalfundur Listhlaupadeildar

Aðalfundur Listhlaupadeildar Skautafélags Akureyrar/LSA 2021 Verður haldinn þriðjudaginn 11. maí nk. kl. 20.00 í fundarherbergi skautahallarinnar.

Venjuleg aðalfundarstörf:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara

  2. Skýrsla um starfsemi deildarinnar á liðnu ári

  3. Skýrsla um fjárhag deildarinnar og endurskoðaðir reikningar lagðir fram

  4. Kosin deildarstjórn og tveir varamenn

  5. Önnur mál er fram kunna að koma

     

Gjaldkeri og varaformaður muna láta af störfum. Óskað er því eftir nýjum fulltrúum í stjórn.

Þeir sem hafa hug á því að bjóða sig fram í stjórnarsetu hjá LSA eru beðnir um að senda póst á sitjandi formann á formadur@listhlaup.is fyrir 9. maí nk.