Aðalfundur listhlaupadeildar mánudaginn 12. maí


Boðað er til aðalfundar Lishlaupadeildar Skautafélags Akureyrar mánudagskvöldið 12. maí kl. 19.30 í fundarherbergi Skautahallarinnar. Aðalfundur foreldrafélags deildarinnar verður kl. 19.00.

Venjuleg aðalfundarstörf eru á dagskrá. Félagar eru hvattir til að mæta.

Í lögum félagsins segir m.a. um aðalfundi deilda: "Til aðalfundarins skal boða með viku fyrirvara, í dagblöðum, dagskrám og/eða heimasíðu félagsins og er hann lögmætur sé löglega til hans boðað.

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir.
1. Kosinn fundarstjóri og fundarritari
2. Stjórn deildarinnar gefur skýrslu um starfsemi deildarinnar á liðnu starfsári.
3. Stjórn deildarinnar gefur skýrslu um fjárhag deildarinnar og leggur fram endurskoðaða reikninga
4. Kosin deildarstjórn og tveir varamenn
  a) Kosinn formaður
  b) Kosinn varaformaður
  c) Kosinn ritari
  d) Kosinn gjaldkeri
  e) Kosinn meiðstjórnandi
  f) Kosnir tveir varamenn 
5. Önnur mál er fram kunna að koma

Á fundinum ræður meirihluti atkvæða úrslitum allra mála, þó með þeim undantekningum sem gerðar eru í lögum þessum. 

Aðalfundur foreldrafélagsins verður haldinn sama dag kl. 19.00.