Ævar í nýju hlutverki

Markmaður?
Markmaður?
Í leik 2. flokks í gær var í vörninni hjá SR leikmaður sem við höfum vanist að sjá á milli stanganna hingað til, en það var Ævar Björnsson, aðalmarkvörður SR.  Ævar kom satt best að segja á óvart í þessu nýja hlutverki og var með ferskari mönnum SR-inga.  Reyndar átti hann erfitt með að halda sig langt markinu og a.m.k. einu sinni var hann kominn fyrir aftan markmanninn og varði þar eitt eða tvö skot. 

Líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd þá var Ævar ekki alveg búinn að gleyma markmannstöktunum því hann renndi sér fimlega fyrir skyttur SA þegar svo bar undir.