Afísæfing hjá Audrey Freyju

Hér eru skilaboð frá Audrey Freyju sem hún sendi á facebook síðunni. Hér er slóðin inn á síðuna fyrir þá sem ekki eru enn búnir að gerast meðlimir: http://www.facebook.com/group.php?gid=103694271496

 

Hæhæ! 

Ég veit ekki hvort þið hafið séð það sem ég skrifaði inn á síðuna í sambandi við æfingar. Þar talaði ég allavega um æfingar næstu daga og næsta æfing er á morgun miðvikudag kl 17:15-18:15. Það var æfing í gær sem ég auglýsti en ég held einhvernveginn að það hafi kannski farið framhjá mörgum þar sem það mættu bara fjórar! :/ 

Koma svo, reynið að vera duglegar að mæta í afísinn, það hjálpar manni svo mikið að halda sér aðeins við svona yfir sumarið svo maður sé ekki með harðsperrur í 2 vikur þegar ísæfingarnar byrja aftur! ;) Það er líka svo rosalega gaman að hreyfa sig úti í góðra vina hópi ekki satt!

Hlakka til að sjá ykkur hressar á morgun kl 17:15 við skautahöllina!

kv. Audrey skemmtilega! :D