Akureyrarmótið í krullu: Fjögur á toppnum

Árni G(arpur)rétar Árnason - efstur ásamt fleirum.
Árni G(arpur)rétar Árnason - efstur ásamt fleirum.


Fjögur lið eru efst og jöfn að loknum þremur umferðum á Akureyrarmótinu í krullu. 

Úrslit 3. umferðar:
Bragðarefir - Urtur  11-1
Garpar - Mammútar  2-8 (leikur spilaður 26. sept.)
Fífurnar - Team Tårnby  3-6

Bragðarefir, Garpar, Mammútar og Team Tårnby eru efst og jöfn að loknum þremur umferðum, öll með tvo sigra. Öll úrslit og leikjadagsrká í excel-skjali hér.

Fjórða og næstsíðasta umferðin verður spiluð mánudagskvöldið 15. október, en þá mætast: 

Braut 2: Mammútar - Fífurnar
Braut 3: Urtur - Team Tårnby
Braut 4: Bragðarefir - Garpar 
Ísumsjón: Fífurnar, Team Tårnby, Garpar