Aldís Kara Bergsdóttir og Hafþór Andri Sigrúnarson Íþróttafólk SA 2019

Aldís og Hafþór (mynd: (Ásgrímur Ágústsson)
Aldís og Hafþór (mynd: (Ásgrímur Ágústsson)

Aldís Kara Bergsdóttir og Hafþór Andri Sigrúnarson hafa hlotið nafnbótina íþróttakona og íþróttakarl SA fyrir árið 2019. Aldís Kara var valin bæði skautakona listhlaupadeildar á dögunum sem og skautakona ársins hjá Skautasambandi Íslands. Hafþór Andri var valinn íshokkímaður íshokkídeildar SA fyrir árið 2019. Þau eru tilnefnd af Skautafélaginu til íþróttafólks Akureyrar fyrir árið 2019 en kjörið fer fram miðvikudaginn 15. janúar kl. 17.30 í Hofi en öllum bæjarbúum er boðið í kjörið. Við óskum Aldís og Hafþór hjartanlega til hamingju með þessa nafnbót.