Aldís Kara með nýtt Íslandsmet og hæstu stig sögunnar

Aldís Kara (mynd: iceskate.is)
Aldís Kara (mynd: iceskate.is)

Aldís Kara Bergsdóttir hefur verið á gífurlegri siglingu undanfarið og náði nýverið stigaviðmiðum í stuttu prógrami inn á Heimsmeistaramót unglinga. Hún hefur sett hvert metið í Junior á fætur öðru síðan í janúar og var þetta Vetrarmótið þar engin undantekning. Hún bætti metið í stutta prógraminu um þrjú stig. Fyrra metið átti hún sjálf frá Vormóti ÍSS í apríl s.l. Hún bætti einnig stigametið í frjálsa prógraminu um 0.74 stig frá því að hún setti það sjálf á Haustmóti ÍSS í september s.l. Það þarf því ekki að tíunda að heildarstigametið bætti hún einnig og hvorki meira né minna en um heil 127.69 stig. Fyrra metið átti hún einnig sjálf frá Haustmótinu. Metin eru öll stigamet í Junior sem og hæstu stig sem skautari hefur fengið á landsvísu.


Heimild: Skautasamband Íslands (iceskate.is)