Anna Sonja er íshokkíkona ársins

Anna Sonja. Mynd: Ásgrímur Ágústsson
Anna Sonja. Mynd: Ásgrímur Ágústsson


Anna Sonja Ágústsdóttir, leikmaður Ásynja, hefur verið valin íshokkíkona ársins af ÍHÍ. Hún er fyrst kvenna til að hljóta þessa nafnbót oftar en einu sinni.

Þetta kemur fram í frétt á vef íHÍ í dag, en textinn hér að neðan er tekinn beint af vef ÍHÍ.

Anna Sonja Ágústsdóttir er íshokkíkona ársins. Anna Sonja er 24 ára varnarmaður sem leikur með Skautafélagi Akureyrar. Hún hóf að æfa íshokkí sex ára gömul og hefur leikið allan sinn feril með Skautafélagi Akureyrar, að undanskildu einu ári þegar hún lék með Malmö Redhawks í Svíþjóð. 

Anna Sonja hefur spilað með öllum landsliðum kvenna sem valin hafa verið á Íslandi frá upphafi. Hún er fyrirliði kvennaliðs Skautafélags Akureyrar sem eru núverandi Deildar- og Íslandsmeistarar. 

Anna Sonja er auk þess fyrirliði Íslenska kvennalandsliðsins í íshokkí og hefur á tveimur síðastliðnum heimsmeistaramótum, sem liðið tók þátt í, verið valinn besti varnarmaður mótsins. 

Anna Sonja er auk þess fyrst kvenna til að vera valinn íshokkíkona ársins oftar en einu sinni.

Til hamingju!