Karfan er tóm.
Bæjarkeppnin gæti orðið á ári hverju mikill viðburður og reikna má með skemmtilegum leik í dag. Þó fellur þessi viðburður kannski ofurlítið í skuggann af hinni mögnuðu undankeppni sem lauk á miðvikudaginn, en það er engu að síður mikilvægt að koma þessu á.
Reykvíkingar eru mættir norður með lið og Josh Gribben er búinn að setja saman lið á móti þeim. Ekki mun vera um sterkustu lið landshlutanna að ræða að þessu sinni, enda markmiðið nú í fyrstu fyrst og fremst að hafa gaman að öllu saman. Við hvetjum fólk til að mæta og skemmta sér vel. Fín upphitun fyrir árshátíðina í kvöld.