Bikarmót ÍSS í Egilshöll helgina 16.-18. október

Þá er komið að Bikarmóti ÍSS sem verður að þessu sinni haldið í Egilshöll. LSA á 18 keppendur á mótinu í 9 keppnisflokkum. Opinber æfing (official practice) fyrir stutta prógrammið hjá Novice A og Junior A hefst í dag klukkan 19:15 og lýkur kl. 20:55. Keppnin hefst svo á laugardagsmorgun klukkan 8:00 með keppni í flokki 8 ára og yngri B. Settar verða inn fréttir frá mótinu í lok hvers keppnisdags. Við óskum stelpunum okkar góðs gengis á mótinu. Hægt er að sjá keppnisröð og síðar úrslit á mótinu hér.