Bikarmót Krulludeildar: Skytturnar og Garpar í úrslit

Mynd: HI
Mynd: HI

Garpar slógu Mammúta út og Skytturnar slógu Ice Hunt út í undanúrslitum.

Undanúrslit Bikarmóts krulludeildar fóru fram í gærkvöldi. Mammútar og Garpar mættust og þar höfðu Garpar betur, 7-3. Í hinum undanúrslitaleiknum mættust Skytturnar og Ice Hunt og þar tvistuðu Skytturnar til sigurs, unnu 9-2 eftir að hafa skorað tvö stig í fyrstu þremur umferðunum, þ.e. tvö í hverri.

Það verða því Garpar og Skytturnar sem mætast í úrslitaleiknum mánudagskvöldið 10. desember. Vakin er athygli á að sá leikur verður 8 umferðir.

Úrslit (excel-skjal)