Karfan er tóm.
Í kvöld lýkur Gimli mótinu 2017. Sl. mánudag, 30. jan. var önnur umferð leikin og skemmst er frá því að segja að Freyjur skelltu Víkingum 10-0 og Garpar lögðu Ice Hunt 10-4. Fyrir loka umerðina standa Garpar best að vígi og tryggja sér titilinn nái þeir að sigra Víkinga. Ef það gengur ekki eftir getur svo farið að Garpar, Freyjur og Víkingar verði jöfn að stigum og verður þá tetkið tillit til unnina enda og svo skoraðra steina ef þörf er á. Það má því búast við spennandi lokaumferð í kvöld. Leikirnir hefjast kl. 19:00.
Frekari upplýsingar má finna í þessu skjali.