Karfan er tóm.
Önnur umferð var leikin mánudaginn 13. mars. Leik Ice Hunt og Garpa lauk með sigri Garpa 10 - 1 og í hinni viðureigninginni áttust við Freyjur og Víkingar og endaði sá leikur 11 - 2 fyrir Víkinga. Eftir tvær fyrstu umferðirnar hafa Garpar og Víkingar unnið báða sína leiki og eru með 2 stig en Freyjur og Ice Hunt hafa tapað báðum sínum viðureignum. Í næstu umferð leika Ice Hunt og Freyjur á braut 1 og ljóst að annað liðið nær í sinn fyrsta sigur en Garpar og Víkingar á braut 2 og þar er ljóst að annað liðið tapar sinni fyrstu viðureign og lýkur þar með fyrri umferðinni af tveimur.