Einstakur árangur SA íshokkí sem vann alla mögulega titla tímabilsins 2018-2019

Íshokkídeild Skautafélags Akureyrar náði þeim einstaka árangri á tímabilinu 2018-2019 að vinna alla mögulega titla sem í boði voru í íslensku íshokkí. Félagið vann deildarmeistaratitlana og Íslandsmeistaratitlana í meistaraflokki karla og kvenna. Meistaraflokkur karla vann einnig bikarmeistaratitilinn í ár ásamt því að vinna fyrstu umferð Evrópukeppnninnar Continental CUP og náði 3. sætinu í þriðju umferð keppninnar. Þá varð félagið Íslandsmeistari í öllum unglingaflokkunum 2., 3. og 4 flokk bæði A og B liða.

Í gær var haldin uppskeruhátíð til heiðurs unglingaflokkanna þar sem árangri vetrarins var fagnað ásamt því að veita þeim verðlaun sem þóttu hafa skarað framúr, vaxið mest og sýnt af sér mestu fyrirmyndar eiginleikanna á tímabilinu. Í 4. Flokki sýndi Uni Steinn Sigurðsson mestu framfarirnar, Inga Rakel Aradóttir var besta fyrirmyndin og Birkir Rafn Einisson mikilvægasti leikmaðurinn. Í 3. Flokki sýndi Katrín Rós Björnsdóttir mestu framfarirnar, Jón og Lárus Baldurssynir voru bestu fyrirmyndirnar og Dagur Freyr Jónasson mikilvægasti leikmaðurinn. Í 2. Flokki sýndi Egill Birgisson mestu framfarirnar og bestu endurkomuna eins og Jussi Sipponen þjálfari liðsins orðaði það. Jakob Jóhannesson var besta fyrirmyndin og Einar Kristján Grant var mikilvægasti leikmaðurinn.

Hokkídeildin fékk einnig skemmtilega heimsókn við sama tækifæri frá Hildi Bettý Kristjánsdóttur formanni frístundaráðs og Ellerti Erni Ellertssyni deildarstjóra íþróttamála Akureyrarbæjar en þau veittu Ólöfi Björk Sigurðardóttur formanni íshokkídeildarinnar fjárstyrk fyrir árangur félagsins á tímabilinu.

Þessi frábæri árangur í ár kemur ekki af sjálfu sér heldur liggur að baki margra ára sjálfboðavinna þeirra sem koma að félaginu ásamt uppbyggingarstarfi þar sem virkilega vel hefur verið haldið utan um barna- og unglingastarf félagsins. Hokkídeildin á heiður skilinn fyrir þetta frábæra starf sem nú er að skila sér í ríkulegri uppskeru og framtíðin lítur einstaklega björt út fyrir félagið og iðkenndur þess. Aldrei hefur verið vikið frá hugsjóninni um jöfn tækifæri - jöfnuð kynjanna og mikilvægi þess að halda vel utan um hvern einasta iðkannda. Hugsjónin og starfið er í eðli sínu fullkominn þversögn við allt sem kallast afreksstarf en afleiðing þess er þrátt fyrir það mikill fjöldi afreksiðkennda og afreka.

Til hamingju hokkídeild, iðkenndur og þjálfarar með frábæran árangur í vetur og vonandi mun starfið verða jafn blómlegt um ókomin ár.

Hildur Bettý og Ollý formaður við styrkveitinguna.

4. flokkur: Birkir Rafn, Inga Rakel og Uni Steinn.

3. flokkur: Katrín, Jón, Lárus og Dagur.

2. flokkur: Egill, Jakob, Einar og Jussi þjálfari.