Eva María Karvelsdóttir og Orri Blöndal Íþróttafólk SA 2017

Orri og Eva við afhendinguna (mynd: Ási)
Orri og Eva við afhendinguna (mynd: Ási)

Stjórn Skautafélags Akureyrar hefur valið Evu Maríu Karvelsdóttur og Orra Blöndal íþróttafólk félagsins fyrir árið 2017. Eva og Orri munu því bæði  koma til greina við val á íþróttamanni Akureyrar fyrir árið 2017.

Eva og Orri áttu bæði frábært ár 2017 og voru í kjölfarið bæði valin íþróttafólk íshokkídeilar Skautafélagsins 2017 en Eva var einnig valin íshokkíkona ársins hjá Íshokkísambandi Íslands og þetta því þriðja viðurkenning hennar fyrir árið 2017. 

Eva og Orri voru heiðruð af Skautafélaginu í fyrsta leikhléi SA Víkinga og Bjarnarins um helgina þar sem formaður félagsins, Birna Baldursdóttir, veitti þeim verðlaunin ásamt farandsbikar og rós. Eva María og Orri er glæsilegir fulltrúar og góðar fyrirmynd skautaíþróttarinnar og Skautafélag Akureyrar óskar þeim til hamingju með nafnbótina.

Frá vinstri: Orri Blöndal, Birna Baldursdóttir og Eva María Karveldsóttir. (mynd: Ásgrímur Ágústsson)