FÉLAGSGJÖLDIN FYRIR ÁRIÐ 2016 KOMIN Í HEIMABANKA

Greiðsluseðlar félagsgjalda fyrir árið 2016 eru nú komnir í heimabanka félagsmanna þar sem hægt er að finna þá í valgreiðslukröfum. Félagsgjaldið er kr.  2.000 en við vonumst til þess að þú kæri félagsmaður greiðir félagsgjaldið sem birtist á heimabanka þínum og leggir okkur lið við uppbyggingu félagsins. Ef þú ert ekki félagsmaður í dag en vilt fá greiðsluseðilinn þarft þú aðeins að senda póst á skautahollin@sasport.is og sækja um aðild. 

 Félagar í Skautafélagi Akureyrar eru allir þeir sem iðka sína íþrótt í Skautafélaginu eða nýta aðstöðuna á einn eða annann hátt.  Einnig geta allir sem áhuga hafa á félaginu og starfsemi þess gerst félagsmenn með greiðslu félagsgjalds.  Félagsgjöld eru ekki innifalin í æfingargjöldum. Félagsgjöld renna í sjóð hjá Skautafélaginu sem notaður er í að byggja upp innviði félagsins, bæta aðstöðu fyrir félagsmenn og halda í heiðri sögu félagsins.  Fjárfestingar úr félagssjóði hin síðari ár hafa m.a. verið verðlaunaskápar, húsgögn í félagsherbergi og tækjabúnaður s.s. sjónvarp og skilti á veggjum skautahallarinnar með myndum úr sögu félagsins. 

 Nýjustu fjárfestingar sjóðsins eru kaup á HD upptökubúnaði sem nýttur er á viðburðum félagsins og sendir eru í beinni útsendingu á heimasíðunni öllum áhugasömum til góða. Þá var einnig fjárfest í öflugri gagnageymslu svo félagsmenn hafi aðgang að öllu því efni sem tekið hefur verið upp hjá félaginu og má nálgast það í fundarherberginu í tölvunni þar. Öllum félagsmönnum er heimilt að nálgast efnið en tölvan er tengd við sjónvarpið svo auðvelt er að horfa á.

Blikur eru á lofti um að næsta verkefni sjóðsins verði stórtæk breyting á félagsaðstöðu en teikningar má sjá á myndinni hér neðst. Teikningar gera ráð fyrir því að svalirnar verði framlengdar að gleri og þar að auki komi ný hæð í húsið ofan við svalirnar þar sem er gert ráð fyrir æfingasal fyrir íþróttafólk félagsins. Félagsherbergið mun með þessu stækka mikið og bættast við eldhús, skrifstofur fyrir þjálfara og deildir ásamt heitu rými/sal fyrir veitingar og samkomur á vegum félagsins.  Þetta er stórt verkefni sem sjóðurinn ræður að sjálfsögðu ekki einn við en það var draumur félagsins að grunnur að þessari aðstöðu yrði lagður samhliða framkvæmdum á plötu vorið 2016 en sá draumur verður ekki að veruleika. Skautafélagið bindur hinsvegar miklar vonir við að mögulegt sé að hrinda þessari framkvæmd af stað sem fyrst þar sem hönnun verksins er nánast frágengin og hlutverk sjóðsins verður þá að styðja við uppbyggingu á þessari framkvæmd við félagsaðstöðuna sem verður algjör bylting fyrir starfsemi félagsins og alla þá sem sækja skautahöllina heim.