Frábær árangur SA stúlkna á Kristalsmóti Bjarnarins um helgina

Mótið hófst á laugardaginn með keppni í 8 ára og yngri C þar sem við áttum tvo keppendur, þær Berglindi Ingu og Indíönu Rós. Þær stóðu sig báðar með mikilli príði. Indíana Rós fékk viðurkenningu dómara fyrir framkvæmd á prógrammi (túlkun). Þetta var stór stund hjá Berglindi Ingu, en hún var að  taka þátt í sínu fyrsta skautamóti.

Í dag áttum við svo þrjá keppendur, þær Sigríði Eddu, Aldísi Lilju og Hugrúnu Önnu. Stelpurnar áttu allar mjög flott mót.  Sigríður Edda hafnaði í öðru sæti í 12 ára og yngri C, Aldís Lilja sigraði í stúlkna flokki C og Hugrún Anna hafnaði í öðru sæti í stúlknaflokki C.

Innilega til hamingju með frábæran árangur kæru skautarar, foreldrar og þjálfari.