Greifamótið í íshokkí um helgina í Skautahöllinni

Barnamót Greifans í íshokkí verður haldið hjá okkur í Skautahöllinni um helgina. Um 150 börn eru skráð til leiks og verður leikið á laugardag og sunnudag en dagskrá mótsins má sjá hér. Leikið er í fjórum flokkum, 5. 6. og 7. flokki ásamt krílaflokki. Liðsskipan SA liðanna má finna hér. Við hvetjum alla sem hafa gaman af íshokkí til að mæta í stúkuna og sjá allar litlu hokkístjörnurnar okkar.