ÍSLANDSMÓT BARNA OG UNGLINGA 2021

Chicks og Cubs keppendur
Chicks og Cubs keppendur

Helgina 19.-21. nóvember var Íslandsmót barna og unglinga 2021 haldið í skautahöllinni í Laugardal. Á þessu móti keppa iðkendur í eftirfarandi aldursflokkum: Chicks, Cubs, Basic novice girls, Intermediate novice girls og Intermediate women. LSA átti iðkendur í öllum keppnisflokkum mótsins. Allir LSA keppendur enduðu á verðlaunapalli í þeim keppnisflokkum þar sem veitt voru verðlaun. Vegna hertra sóttvarnaraðgerða vegna Covid-19 þurftu allir keppendur, þjálfarar, áhorfendur, sjálfboðaliðar og allir þeir sem komu að mótinu að sýna neikvætt hraðpróf við komu í skautahöllina, sem var í fyrsta sinn sem þess hefur þurft, en með þessum ráðstöfunum var hægt að halda mótið. Lukkulega gátu allir 9 iðkendur LSA sýnt fram á neikvætt hraðpróf og sýnt áhorfendum hæfni sína á ísnum.

LSA Chicks, Cubs og Basic novice girls keppendurÍ tveimur yngstu flokkunum, Chicks og Cubs, sem kepptu á laugardagsmorgninum er ekki keppt um sæti en allir iðkendur fá þátttökuverðlaun. Allar stúlkurnar okkar, Freyja Ingibjörg Rögnvaldsdóttir, Helga Mey Jóhannsdóttir og Ronja Valgý Baldursdóttir í flokki Chicks, og Heiðbrá Hekla Sigurgeirsdóttir og Ylfa Rún Guðmundsdóttir í flokki Cubs sýndu frábæra frammistöðu. Prógrömmin þeirra innihéldu mörg erfið element eins og samsettar pírúettur og Axel stökk. Framtíð LSA er björt með þessa ungu og efnilegu iðkendur innan félagsins.

Basic novice girlsÍ flokki Basic novice keppti Berglind Inga Benediktsdóttir fyrir hönd LSA. Góð frammistaða Berglindar hefur tryggt henni sæti á verðlaunapalli á öllum mótum sem hún hefur tekið þátt í þau tvö ár sem hún hefur keppt í þessum keppnisflokk. Í þetta sinn fóru ekki öll stökkin hjá Berglindi samkvæmt áætlun, en hún tryggði sér engu að síður 3. sætið með 22,77 stig. Þetta var í síðasta sinn sem Berglind keppir með LSA. Við þökkum henni fyrir frábæra frammistöðu öll hennar ár innan félagsins og óskum henni alls hins besta á sínu nýja „Skauta-Heimili“.


Á sunnudeginum hélt mótið áfram og kepptu þá eldri flokkarnir tveir.

Intermediate novice

Í Intermediate novice flokki kepptu Kristbjörg Eva Magnadóttir og Salka Rannveig Rúnarsdóttir fyrir hönd LSA. Kristbjörg og Salka eru báðar efnilegir skautarar sem sýna framúrskarandi túlkun og skautahæfileika. Salka var með mörg ólík tvöföld stökk í sínu prógrammi og náði hún að lenda þeim öllum og einungis tvöfalt Lutz var dæmt ekki full snúið. Þessi flotta frammistaða skilaði henni 22,70 stigum í heildina og þar með öðrum gullverðlaunum tímabilsins. Kristbjörg átti í smá vandræðum með sum tvöföldu stökkin, en frammistaða hennar og túlkun var framúrskarandi og skilaði henni annarri hæstu component einkunn í flokknum, 17,21 stig samanlagt og lenti hún í þriðja sæti.


Intermediate women

Ásdís Arna Fen Bergsveinsdóttir hefur eignað sér fyrsta sætið í Intermediate women flokknum á tímabilinu. Hún kom sterk til leiks aftur eftir tveggja ára pásu frá keppnum og framkvæmdi í prógramminu sínu pírúettu með fljúgandi innkomu á level 3, samsetta pírúettu á level 4 og stökk samsetningmeð þrem tvöföldum stökkum. Frábær frammistaða Ásdísar skilaði henni 1. sætinu með 47,03 heildarstig, og var hún næstum 20 stigum hærri en aðrir keppendur flokksins.

 



Við óskum öllum iðkendum okkar innilega til hamingju með þeirra frammistöðu. Einnig sendum við sérstakar þakkir til mótshaldaranna, sem gerðu það mögulegt að mótið færi fram og tryggðu öryggi þátttakenda á þessum erfiðu tímum.

* myndir teknar af www.iceskate.is