Iðkendur í 5.hópi - Bíóferð

Við ætlum aðeins að hrista hópinn saman og fara saman í bíó á morgun laugardaginn 7. nóvember og var kosið eftir æfingu og var niðurstaðan að sjá High School Musical 3. Myndin er sýnd í SAM bíóunum á Akureyri klukkan 18:00, það kostar 900 kr inn. Endilega mætum tímanlega kl:17:40 og með góða skapið meðferðis :-)

 

 

 

 

Um myndina

 

High School Musical myndaröðin heldur áfram, en hér eru Troy og Gabriella komin á lokaárið í framhaldsskóla og horfa fram á aðskilnað þar sem þau ætla í sitthvorn háskólann. Ásamt úrvalsliði söngvara ákveða þau að búa til söngleik sem endurspeglar reynslu þeirra í skólanum og framtíðarvonir. Ný tónlist og kraftmikil dansatriði líta dagsins ljós í mynd sem nýtur sín best á stóra tjaldinu.

Leikstjóri: Kenny Ortega
Handrit: Peter Barsocchini
Aðalhlutverk: Zac Efron, Vanessa Anne Hudgens, Ashley Tisdale, Lucas Grabeel, Corbin Bleu, Monique Coleman